Firefox í samanburði við Brave
Persónuverndarstillingar Firefox eru öflugar og auðveldar í notkun. Sjálfgefin útilokun auglýsinga í Brave gæti truflað vefsvæðin sem þú heimsækir, svo þú þarft að fikta stöðugt í stillingunum. Við viljum að persónuverndin sé nógu þægileg til að þú notir hana í raun og veru.
Firefox auðveldar þér að velja hvaða leitarvél þú vilt nota í hvert skipti sem þú leitar. Brave notar sjálfgefið sína eigin leitarvél og þú þarft að fara í gegnum stillingar vafrans til að velja eitthvað annað.
Firefox gefur þér möguleika á að dulrita vistuðu lykilorðin þín og þú getur þá notað aðallykilorð til að fá aðgang að þeim; lykilorðin þín eru varin jafnvel þótt þú þurfir að deila tölvu með öðrum. Brave verndar lykilorðin þín ekki með aðallykilorði.
We also offer easy-to-use features such as:
- Edit PDFs on the go within your Firefox browser window - no extra software needed.
- Translate a web page locally and privately.
Það er auðvelt að skipta
Það er auðvelt og fljótlegt að skipta yfir í Firefox — flyttu inn úr Brave bókamerki, lykilorð, vafurferil og stillingar með einum smelli og vertu strax tilbúin/n í að nota Firefox. Kynntu þér hvernig á að flytja inn gögn úr Brave.